07.03.2011 kl. 23:11
Núna í kvöld vorum við að setja út nýja útgáfu af Veiðibók.is. Það fyrsta sem fólk tekur eftir er eflaust nýtt útlit. Það er ekki það eina sem er nýtt í þessari útgáfu en þar ber helst að nefna:
- Nýtt Íslandskort sem sýnir alla veiðistaði sem eru með skráð GPS hnit. Sjá hérna.
- Fréttaveita sem birtir allar nýjust fréttirnar af helstu veiðivefjum landsins (votnogveidi.is, veidikortid.is, svfr.is, sportveidi.is, ... Sjá hérna.
- Sjálfvirkar veðurspár: Fyrir veiðistaði sem eru með skráð GPS hnit þá birtist veðurspá frá næstu sjálfvirku veðurathugunarstöð. Sjá t.d. hérna á yfirlitssíðu fyrir Þingvallavatn.
- Hægt að skoða allar opnar veiðiferðir fyrir alla veiðistaði, ekki bara þær nýjustu.
- Textalýsingar við myndir.
- Endurbættur atburðalisti.
Svo er fullt af öðrum nýjungum sem við munum kynna betur á næstu dögum. Ef þið hafið einhverjar spurningar eða ábendingar þá megiði endilega senda á okkur línu á veidibok [hja] veidibok.is eða
hérna.